|
|
14.10.2006 12:26:56 / poppkorn
Kæru landar Ég ætla aðeins að víkja af minni vanaföstu braut
og í staðinn fyrir að skrifa broslega sögu um líferni og háttarfar
mitt undanfarnar vikur hef ég ákveðið að skrifa um nokkuð sem ég
tel vera virkilega umhugsunarvert.
Þannig er mál með vexti að ég var í félagsfræðitíma um
daginn og umræðuefnið var umskurður kvenna. Þvílíkur hryllingur sem
var þar á ferð. Ég hef oft heyrt um þetta, en einhvern veginn
aldrei áttað mig á hversu hræðilegt þetta ferli er. Stelpur,
aðalega í Afríku, eru þvingaðar til að ganga í gegnum þetta í
þeirri trú að þær verði konur þegar athöfninni er lokið. Ekkert
gagn fylgir athöfninni, þrátt fyrir það er þetta gert við um 2
milljónir stúlkna á hverju einasta ári.
Ekki er sögu minni lokið því upp frá þessu málefni spruttu
um punktar sem settir voru fram, ég ætla að telja upp nokkra af
þeim. Á ferð eru punktar sem samtökin UNIFEM hafa rannsakað:
- Um 2 milljónir kvenna á hverju einasta ári eru seldar í
kynlífsþrælkun
- Um 80% flóttamanna eru börn & konur
- Konur vinna 2/3 hluta allra vinnustunda en eiga aðeins 1% eigna
í heiminum og fá aðeins 10% af heimstekjum í sinn hlut
- Ungar konur í Afríku á aldrinum 15-24 ára eru þrisvar sinnum
líklegri til að smitast af HIV/alnæmi en karlar á sömu slóðum og á
sama aldri
.........það eru til enn fleiri punktar sem ég fræddist
um, en þetta mér finnst þetta vera nóg í bili. Tilfinningar mínar
voru margslungnar þegar ég gleypti þessi orð frá
kennaranum....Reiði, dapurð, hneyksli, gáttun, orðleysi...ég
skammaðist mín. Þarna sat ég í mínum fína skóla á Íslandi, á allt
til alls heima hjá mér, á yndislega fjölskyldu, kærasta og vini, á
trú á Jesú Krist....
Mér fannst tími til komin að ég færi að breikka
sjóndeilarhring minn aðeins með því að hugsa um hvað litla ég á
Íslandi gæti gert fyrir þessar konur. Ég áttaði mig á því að það
þurfti ekki mikið til. Í 1.lagi fór ég inn á UNIFEM síðuna og
skráði mig í félagið, í 2. lagi get ég svo sannarlega munað eftir
þessum konum í bænum mínum.
Ef maður lítur á heiminn eins og hann er í dag, þá spretta
jafnvel svipaðar tilfinningar um kropp manns eins og ég taldi hér
upp fyrir ofan. En ég spyr, hví ekki að sleppa bragðarefunum
einstaka sinnum og leyfa bragðlaukunum að hvíla sig, en í staðinn
fylla hjarta sitt af gleði eftir að hafa leyft náungakærleikanum að
njóta sín með því styrkja þessar konur? A.m.k. reiknaði ég þetta
út, slíkur bragðarefsunnandi sem ég er, að ef maður sleppir 5
litlum bragðarefum á ári (2.500 kr) þá getur maður í staðinn breytt
heiminum, gert gagn, og virkilega hjálpað þessum konum!
Eins og séra Guðni Már vinur minn sagði við mig svo listilega um
daginn: ,,Í heiminn komstu grátandi en allir í kringum þig brostu.
Lifðu lífinu þannig, að þegar þú deyrð brosir þú, en allir í
kringum þig gráta".
»
12.09.2006 17:25:39 / poppkorn
Jæja!!! Fyrst að ég ekki búin að láta sjá mig á þessari
bloggsíðu í 7 og hálft ár, þá finnst mér komin tími á smá innskot.
Ég er búin að skipta um skólaling núna, ég hætti í Verzló. Þetta
nám var bara ekki að gera sig fyrir anti-business stelpuna. Núna er
ég komin í Flensborg, og mér líkar ofsalega vel verð ég að segja,
algjörlega til að hrópa húrra fyrir að ég get alltaf hangið með
Láru, Guðný, Gullu, Tinnu og fleiri góðum í frímínútum
Jæja KSS-ið í blóma! Vorum með kynningarfund seinastliðinn
laugardag... Virkilega vel heppnað og skemmtilegt, svo er annar
fundur á laugardaginn sem er einnig helgaður nýju fólki, svo
endilega leggðu leið þína að Holtavegi 28 n.k. laugardag kl.
8:30.
Jæja, mín byrjuð í Hress,,,þótt það sé engan veginn
frásögufærandi. Þannig var mál með vexti að ég var ýkt dugleg á
laugardagsmorguninn seinastliðinn og mætti þar í Body Jam. Ég var í
seinni kantinum (sem er EKKERT líkt mér) og þurfti að sætta mig við
pláss aftast út í horni. Byrjaði svo ekki þessi massívt brjálað
tónlist að óma um herbergið, og kennarinn strax kominn á fullt með
svona klikkaða hreyfingu. Ég held nottlega kúlinu og reyni að gera
þetta með sóma, eins og flestar fyrrum Freestyle-gellur mundu gera.
Neineinei, var þetta ekki eitthvað það svæsilegasta sem ég hef
prufað, þetta voru crazy moove, og eftir að hafa stangað konu 2x,
rekast í vegginn 7x, næstum stokkið á súlu 1x, þá hélt ég á leið
út. EN kennarinn sagði að þetta væri afskaplega eðlilegt fyrir
fyrsta tíma svo ætli maður reyni nú ekki aftur. En aftur að
dansinum,,,Ég og Aron erum að leggja leið okkar í kvöld í paradans
með Hilla og Elírassi! Soldið kvíðinn fyrir þessu, en við vonum
bara það besta! Ef Björg systir mín mundi komast að þessu mundi hún
samt æla, æl er rugl.
Annars er ég orðinn virkur félagi í Kattarhötunarfélaginu,
endilega látið mig vita ef þið HATIÐ ketti..... Alltaf er hægt að
leyfa fleiri félaga.
Lifið lífinu, vertu þú sjálf, hættu að ganga í vibbalegum
þröngum gallabuxum sem drepa mallakút, brostu til gömlu
konunnar sem þú mætir á næsta götu horni, og mundu að þú ert elskuð
!
Ást til allra lesenda, yours sincerely Perla Magnúsdóttir
»
14.07.2006 19:15:52 / poppkorn
Hey
beibís!
Hér sit ég í blóma lífsins en þannig er mál
með vexti að ég er klemmd á 2 fingrum og get ekki litið snöggt til
vinstri, upp, né niður. Ástandið er ólýsanlegt og í öllu
algjörlega svaðalegt, en samt er ég bara í sólskinsskapi.
Reyndar er veðrið ekkert að hjálpa manni með sólskinsskapið, ég er
búin að sjá sólina 5 heila daga síðan ég kláraði prófin
fyrir akkúrat 2 mánuðum....Þetta er nú ekki hægt.
Allan Júní var ég uppí Hlíð ásamt silljón
sædum og góðum stelpum. Það var æðislegt í alla staði og
starfsmennirnir þar eru sko þvílíkir orkuboltar, og verulega
fjörugar. Mér fannst virkilega gaman að fá það tækifæri að vinna á
stað eins og þessum, og ég get varla beðið eftir að fá að komast
aftur þangað í lok ágúst ...þar tróð ég líka smjöri upp í mig í
miklum mæli, lék trylltan hermann sem var eins og viðurstyggilegur
karlmaður, fór í ótrúlega flottan brúðarkjól og
fleira....
Björg systir mín var að koma frá London í
gær, eftir að hafa verið þar í 1 ár, hlakka æðislega mikið til að
sjá hana, það verður stuð!
Now I´m just in timberlake, náðuð þið
þessum? Og hér er æði að vera, fyrir utan alla
rigninguna....ótrúlega töff svona trampólín sem er hérna, ég hef
ákveðið að feta í fótspor Victoriu Beckam og losna við aukakílóin
með því að hoppa og skoppa þar.....jesss
Hafið það gott elsku fólk, og njótið besta
árstíma ársins! Lofa að skrifa aftur áður en sumarið klárast
:*
»
28.05.2006 12:47:43 / poppkorn
Ég sagði við sjálfa mig um daginn að ég mundi taka mér svoldið
hlé á síðunni minni sædu, þegar heimsóknirar hefðu náð upp í
10.000. Eins og glöggir hafa tekið eftir hefur það atvik einmitt
átt sér stað.
Ég er sem sagt á leiðinni upp í Vindáshlíð með fríðu föruneyti
kvenna. Svo liggur leiðin þaðan upp í Vatnaskóg..og svo aftur í
Vindáshlíð.
Ég kem samt nokkrum sinnum í bæinn, en að vísu ekkert það oft,
svona samtals í einhverja 10 daga
Njótið besta árstíma ársins í botn. Það er hægt að gera milljón
hluti á sumrin, svo ég tali nú ekki um sumarástina sem er að
kvikna í hjörtum landsmanna svo víða!
Guðný&Lára biðja að heilsa...Við elskum ykkur öll, þangað
til næst Perla Magnúsdóttir :*
»
13.05.2006 18:23:07 / poppkorn
Maaaaan.
Ég er snillingur í að pína sjálfan mig. Ætla rétt að deila með
ykkur einni þannig sögu.
Þannig er mál með vexti að ég var að fara út í sólbað áðan. Eins
og dömur/skvíslur/flestar stelpur/ófranskt kvennfólk/þær sem
sætta sig ekki við að verum frá öpum komnar, eru vanar að
gera þ.e. fjarlæga litlu sætu hárin undir höndunum sínum
brá ég mér í þann leik. Nú emm ég ákvað að prufa svona
háreyðingarkrem en eins og í auglýsingunni segir ,,Enginn leikur,
bara bíða í 3-6 mín og skafa burt..án alls sársauka og vesenis,
Weet eitthvað fyrir þig"...eða álíka, þá fannst mér þetta ansi
sniðugt. VIÐVÖRUN, ekki koma nálægt þessu dæmi!
Nú er ég var búin að bíða í sturtunni syngjandi með
einhverju FM-R and B lagi sem er eitthvað á þessa vegu ,,Shake that
ass with me shake that ass with me", í svona 3-6 mínútur þá byrja
ég að finna fyrir ótakmarkanlega miklum sársauka læðast að
handakrikum mínum..Er þá ekki þetta $/&"($#&"!# krem bara
búið að brenna mjúku og sætu húðina mína.
Það eru um það bil 6 klst síðan þetta átti sér stað, og ég er
búin að sitja á hlírarbolnum einum klæða og láta ekkert snerta
þetta svæði síðan....Svona er að láta auglýsingar hafa mikil áhrif
á sig, og jú reyndar líka að lesa ekki leiðbeiningar
Það lítur allt út fyrir það að ég er ekki bara sadókisti og hef
gaman að að pína aðra, eins og Þorkell góð-vinur minn minnir mig í
sífellu á, ég er einnig með sjálfpíningarhvöt staðsetta í líkama
mínum...Allt bendir amk til þess.
Þrátt fyrir þessa miklu lífsreynslu dagsins í dag, er ég í
sólskinskapi..Ætli það stafi ekki að mestu yfir þessu fallega degi
sem Guð skapaði fyrir okkur Veðrið er amk algjörlega að standa
sig!
Ætli þetta sé ekki nóg í bili, endilega segið ykkur skoðun. Var
þetta jafnvel of hreinskilin/persónuleg færsla...??
Tjáið ykkur, Tjá Tjá (tvenns konar merking )Your loving
Pearly
»
10.05.2006 16:22:48 / poppkorn
óójá! Kæru landsmenn, sumarið er komið!!!
Það er enginn vafi lengur á því, og ég get bara með engum orðum
lýst kátínu minni yfir því, eða þó ég skal reyna.
Ímyndaðu þér að þú sért pínu-lítið krúttubarn sem hefur
aldrei smakkað nammi áður og færð í fyrsta sinn að prófa volga
karamellu. Ímyndaðu þér að Adam Broody hjálpi þér að tína upp
péninga sem þú misstir út í búð og þið rekið hausinn ykkar saman,
og hann biður strax um númerið þitt. Ímyndaðu þér að þú standir
kviknakinn útí rigningunni sem umlykur allan líkamann, hún er ekki
ísköld heldur svona passlega þægileg, svo finnurðu fyrir græna
grasinu vaxa á milli sætu tásalinganna. Ímyndaðu þér að þér og
bestu vinkonu þinni sé boðið saman í heimsreisu og þú færð að
upplifa þetta allt; Píramídanna, fílhjarðir labbandi í nokkurra
metra fjarlægð frá þér, 5 stjörnu hótel í hverri heimsálfunni
á fætur annari, stórbrjálað Carnival í
Rio, gondólasigling við Feneyjar.......
Ef ímyndalagið þitt er í góðu lagi, og þú hefur fengið svona
sælutilfinningu skríða upp kroppinn þinn, þá er það einmitt sú
tilfinning sem ég er að finna fyrir. Aðeins 2 próf eftir!! Og
hvað eru 2 próf miðað við einhverja 225 skóladaga? Ekki bofs.
Annars var mér bara ekki ætlað að mæta í þetta blessaða
frönskupróf mitt í morgun. Ekkert smá mikið yndislegt að vakna
aðeins 3 klst. of seint, sem betur fer var þó kl. bara 9, ég átti
ekki að mæta fyrr en rétt fyrir 12. Svo í öllum hamaganginum ætla
ég að spara mér tíma með því að borða morgunmatinn minn yfir
frönskuglósunum mínum...neinei, ég missi bláberja drykkjarskyrið
mitt frá MS yfir allt heila klabbið. Nú næst á dagskrá var að
hlaupa í strætó, náði honum sem betur fer rétt svo. Svo þegar ég er
búin að koma mér þægiNlega fyrir aftast í vagninum að reyna að síja
inn seinustu viskuna fyrir prófið mitt.....Birtist þá ekki svona
sirka 4.bekkur úr eftil vill Flataskóla í Garðabæ...og ekki nóg með
skríkin, og setningar eins og þessi ,,ojj glætan að ég sitji við
hliðina á honum" óma við eyru mín, þá eru þau öll og hvert einasta
með eitt stykki fisk með sér í poka. Þau höfðu greinlega verið í
náttúrufræðikönnunum fyrr um morguninn....Svo í miðri fiskbrælunni
fer síminn minn að hringja. Lekka Zak í símanum, síður en svo
hress! Ég spyr hvað hafi eiginlega komið fyrir, heyrðu þá hafði
víst einhver vindkviða komið á baðherbergisvaskborðiðog allar fínu
glósurnar hennar (svona litlir mjög padern miðar) höfðu
fokið niður í klósettið. Æjæjæj
En þrátt fyrir þennan crazy morgun er ég bara í ljómandi góðu
skapi Svo fer maður bara að skella sér í enskuna, og svo að lokum
þjóðhagfræði.
Njótið lífsins, verið góð við hvert annað og eins og
góð-vinur minn hann Aron segir svo fallega: Munið að þið eruð öll
elskuð!

»
26.04.2006 15:05:15 / poppkorn
Hey peeps!
Loksins ákvað ég að taka upp "pennann" minn og skrifa nokkur
vel valin orð hérna inná síðuna áður en hún deyr....Búnað
vera soldið agalaus þessa dagana og hreinlega ekki nennt að
tjá mig fyrir alþjóð, sem sagt hér.
Allt í gúddí hjá mér annars.Ætli mesta gúddíið sé ekki það að
skólinn var að klárast á þessum yndisfagra degi. Við í 4-A héldum
Kökudag af tilefninu, afar vel heppnað jee.
Mín farin að hlakka heldur betur til sumarsins,, óójá. Þetta
veður á Íslandi er að verða meira en lítið skrítið....ekki að fíla
þetta. Að vísu er ég soldið stressuð fyrir sumrinu mínu. Málið er
að ég fer nánast í ALLT sumar uppí Vindáshlíð og smá í Vatnaskóg
líka. Þetta er sko í 1.sinn sem ég fer svona langan tíma í burtu
frá unaðslega húsinu mínu, mínum ástkæru foreldrum og
síðast en ekki síst mínum yndisauknu vinum!...En eins og vitrir
menn segja oft, hvað er þetta annað en tækifæri til að þroskast og
gera eitthvað allt annað en maður er vanur?
Svo er bara komið eitthvað bloggsirkus dæmi...hmm einhver sem
kann á það almennilega mega endilega kenna mér það, ég er ekkert
mikið fyrir leiðbeiningar
Jæja eitt soldið gaman held ég, það er nefnilega
Peysufatadaguinn hjá 4.bekk í Verzlunarskóla Íslands á morgun...
Ljúfa dagskrá! Byrjum á morgunmat í ráðhúsinu, dönsum heilan
helling, borðum hádegismat í Perlunni ( ég býð öllum í mat ), voða
flotta myndartaka, svo auðvitað fín bók sem við fáum...Auðvitað má
ekki gleyma parteeyy um kvöldið og svo þrammað þaðan út á
Broadway. Eitt soldið lame samt, mín ekki enn komin með Herra. Ætli
ég verði ekki bara það heppin að fá að vefja örmum mínum um hana
Alenku mína.....sem er svo sem ekkert neikvætt.
Annars eru nýyrði mín þessa vikunna Nákvó
(stytting á nákvæmlega, ekki beint nýyrði þar sem ég hef notað
þetta í mánuð) & Fannari (stytting á
fantastic). Lög vikunnar er auðvitað Vorkvöld í Reykjavík
og Vor í Vaglaskógi...þau bara passa svo afar vel við
þessa dagana. Afmælisbörn vikunnar eru Birgir Þór,
Rögnvaldur Már, Þorkell Gunnar & Pétur Óli...Til
hamingju með afmælið sædu stráklingarnir mínir! Sorry virkilega
mikið ef ég er að gleyma einhverjum!
Hey best ég segi ykkur líka frá einu fáránlega vandræðalegu sem
kom fyrir mig áðan. Ég og nokkrar vinkonur mínar í skólanum vorum
að tala um ballið sem er annað kvöld, og Nína segir eitthvað
svona ,,Jááá á ekki svo að mæta bara sumarlegar á morgun, bara
berleggjaðar og sleppa sokkabuxunum" Kemur þá lúðinn og segi,
(auðvitað að reyna að vera sniðug),, Blessuð vertu maður, ég
ætla nú bara að sleppa naríunum". Um leið og sleppi orðunum verðum
mér litið beint (já beint!) fyrir aftan mig, stendur þar ekki
verulega virðurlegur karlkyns kennari, sem var sko ekki hlátur í
huga.....æj ég er fædd til að gera mig að asna.
Eitt enn...Allir að koma á næsta KSS fund, haldnir á Holtavegi
28 fyrir þá sem ekki vita. Öll laugardagskvöld kl. 8.30...Þetta
verður stuð
Annars vil ég bara minna ykkur á þetta:
http://www.123greetings.com/encouragement_and_inspiration/habits/habits2.html
Þetta er gífurlega
mikilvægt, maður er samt alltaf að gleyma þessu, amk ég. Jæja komið
nóg í bili...Njótið lífsins ljúflingarnir mínir, kv.
Perdddla :*
»
11.04.2006 13:22:40 / poppkorn
Niðurstaða: Síðan er of stelpuleg/ stelpur eru virkari á
netinu
»
10.04.2006 11:12:42 / poppkorn
Maaaan
Heng ég hér uppá bókasafni Verzlunarskóla Íslands að bölva
stjórnmálfafræðikennaranum mínum fyrir að setja á okkur ritgerð
fyrir daginn í dag um femínsma.....11p letur og allt, nánar
tiltekið 17:07. Ég sem ætlaði að hitta Gulluna mína og rölta
um bæinn með henni
Bjöllí systir bara komin heim. Stór-gott að fá hana á heimilið.
Þess má líka geta að hún var 21 árs í gær og fjölskyldan hélt uppá
afmælið með stæl á Carauso= delisíus! Til hamingju Björg mín!
Annars vil ég minna á að það eru aðeins 2 dagar í alræmda
Vorskólamótið uppí Vatnaskógi...Sjálf hlakka ég gríðarlega til og
vona af öllu hjarta að þetta mót eigi eftir að vera eðall á
ferð.Skemmtið ykkur vel um páskana og munið eftir aðaltilgangi
þeirra, þ.e. fórn og síðan upprisu Jesú Krists á
Páskadag!!
Jááá, ætlaði alltaf skrifa um eitt inná bloggið
mitt....Litlir krakkar eru ótrúlegir. Sko bæði á góðan og slæman
hátt, en eins neikvæðu skapi og ég er í dag þá ætla ég að segja
ykkur hvað ég lenti í brjálað klikkuðum krökkum um daginn Var sem
sagt í góðum fíling að sækja Láru Höllu eitt
miðvikudagseftirmiðdegið, sé ég þá ekki tvö krakkaorma
(strákar) fylgjast svona með fínu Corollunni hennar mömmu
sem ég var einmitt að keyra á þessari stundu. Ég bara brosi og
keyri áfram, og einmitt þegar ég er að keyra fram
hjá bjálæðingunum heyri ég svona agalegan "dink" á bílnum
mínum. Ég lít við og sé bjálæðingana tvo hvergi. Málið var þá
að þeir hafa ákveðið að dúndra einhverju grjóti í bílinn....Þetta
er sem sagt nýjasta sportið hjá þessum krökkum í dag. Enginn snjór
eða vatnsblöðrur....Bara íslenskt grjót takk fyrir. Skemmtið ykkur
vel að ala þessi ungviði upp þið sem verðið upp í Vatnaskógi í
sumar jú eða námskeiðunum þar sem svona prakkara-strákar verða á
ferð. Sjálf ætla ég að dvelja að mestu hjá stelpunum í
Vindáshlíð!
Verið góð við hvort annað, með vor í hjarta Perla

Hey já, munið að skrifa í gestabókina mína, það er svo gaman.
Fólk alveg farið að klikka á því Var líka aðbæta við einhverju
þarna sniðugu um mig efst á síðuna
»
02.04.2006 23:34:22 / poppkorn

Hæ elskurnar mínar...Eftir margra daga frí frá bloggheiminum hef
ég nú loksins ákveðið að drita inn ferskri færlsu eins og ég hafði
lofað ykkur. Eins og glöggir lesendur síðunnar hafa tekið eftir var
ég í Danmerku í Árósarborg.....Engin orð lýsa hversu mikil
snilldleiki blasti við mér í ferðinni. Þetta var svo virkilega
gaman og þótt ég sé svona milljón köflum eftir úr í Egilssögu, í
rugli varðandi rekstrarhagfræði lokaprófið mitt á miðvikudaginn og
misst af einhverjum 3 prófum í vikunni....
Þá get ég bara engan vegin sagt að ég sé að sjá eitthvað eftir
því að hafa farið. Vorum sem sagt í viku þarna úti. Ég og Alenka
gistum saman í einbreiðurúmi, soldið spes en mjög notalegt eftir
útiveru á köldum nætum. Samt algjör snilld að fá að búa með henni,
fékk líka að kynnast henni enn betur og ég held svei mér þá að
maður þroskist á að búa í svona mikillin náveru með manneksju, nú
er ég líka 1 skrefi lengra í að fara í sambúð, ehh.
Danir eru svakalegir, skal útskýra afhverju: Í strætó fullyrti
bláókunnugur maður við mig að mínar eigin vinkonur frá Íslandi
skyldu mig ekki því ég væri svo hávær, enginn nema einn sem ég
sýndi Silvíu Nótt myndbandið fílaði Silvíu. Ég var spurð hvort ég
væri mikið í hassdýrkun,(ekki alveg týpan), þeir hafa mjög
takmarkaðan húmor og einn sagði að það að hlæja sýndi ekkert nema
heimsku.(Sá hinn sami var sonur prests, ég minni nú bara á
gleðitextana í kringum 800 í Biblíunni), þau reyktu nánast öll eins
og brjálæðingar hvar sem er hvenær sem er. Og að lokum, strákarnir
voru feimnir sem grafir nema þeir höfðu áfengi í kroppnum.
Búðirnar voru klárlega það besta við borgina. Þær voru í
tonnatali og blöstu við hvert sem maður fór. Okkur íslensku
stelpunum tókst nú samt sem áður að kaupa okkur afaaar lík föt.
Mörg nickname komu uppí ferðinnni, ætla samt ekki að segja hver á
hvaða :
Aftursleikta-loftbólan
Hommakyssararnir 2
Stór-hólks-sogarinn ....Og fleira og fleira og fleira
Eitt geggjað flott sko, fórum á svona Fun-ship heitir
Broen, sem sagt skemmtistaður útá sjó! Það var sko virkilega gaman
á honum og fórum á hann heil 3 kvöld! Svo fórum við líka á
Kattegatmuseet, þar voru lifandi hákarlar að svamla í kringum mann!
Annað mjög sérstakt, aðal rónabekkurinn var beint fyrir utan
Dómkirkjuna og þar var svona box fyrir sprautur, mjög sérstakt
fannst mér!
Jæja ætli þetta sé ekki komið hérna fínt blogg um útlandaferðina
mína æðislegu. Stefnan er svo að skella sér aftur þarna í næsta
vetrarfríi, söknum krakkanna og staðarins nú þegar skelfilega
mikið! Erum með svona Danmerkurþrá.!!!
»
24.03.2006 16:15:59 / poppkorn
Okey. Núna eftir akkúrat 13 klst þá fer ég, ásamt 19 manna
fríðum flokk ( 2 stákar, 7 4-bekkjarstelpur, restin
3-bekkjarstelpur), að leggja af stað út á Keflavíkurflugvöll. Erum
að fara til lands flödeskumskagene, og rögbrödene og pölserne. Í
öðrum orðum DK beibí!
Annars er ég bara ofsalega hress. Verzló rústaði svoleiðis Borgó í
gær í GettuBetur, snelld. Svo eru kosningar eftir 8 daga í
magnþrungna félaginu KSS, ég er einmitt í framboði
þar rétt næ heim fyrir aðalfundinn...ég er nú meiri sauðurinn ef
flugvélin seinkar um svo sem 4 klst.Vildi bara rétt skrifa ykkur
eitthvað um 8-18 línur áður en ég legg ei lengur land undir fót,
heldur valhoppa ég um í flugvél af spenningi Eins og ég minntist á
í seinustu færslu, kem ég með feita og ferska færslu frá
Danaveldinu....Ef ykkur langar í eitthvað sem fæst þarna, látið mig
bara vita...Annars vil ég bara segja góða skemmtun í SKÓLANUM Og
horfið á Ungfrú Reykjavík, móðursystir mín er einmitt að fara að
keppa hún
Steffí
Love you, og hér með sendi ég ykkur knús og kossa! (Minni ykkur
líka á að það sem er boldað og í skáletri, það eru svona linkar á
fallegar síður )
»
23.03.2006 12:43:23 / poppkorn
Ég held að orð séu óþarfi, samkvæmt
mínum heimiildum er hann að hnerra:*
»
19.03.2006 10:47:21 / poppkorn
Nú er komin sunnudagurinn 19.mars, og klukkan bara rétt
rúmlega hálf 11. Málið er nákvæmlega það að ég er dottin þvílíkt
aftur úr í lærdómi og ég þarf svei mér þá að læra alla vikuna, er
að fara í lokapróf í rekstrarhagfræði eftir 15 daga, 7 af þessum
dögum verð ég í Danmörku...úje.
Þetta er aðalástæðan útaf bloggleysi mínu, það er ekki
það að ég nenni þessu ekki! Veriði bara dugleg að skoða aðrar
bloggsíður meðan þessi rugl-læri-tími gengur yfir hjá mér. Lofa svo
að koma með þrusufærlsu þegar ég kem heim frá Danaveldinu Munið að
vera góð við hvort annað og njóta lífsins!
Love you Perla Magnúsdóttir
.....Snilldarmynd!

»
16.03.2006 15:41:14 / poppkorn
Ég gef manneskjunni sem verður nr. 7000 óvnætan
glaðning!!!
»
16.03.2006 15:37:29 / poppkorn
Annars vildi ég bara segja að ég er á lífi, skólinn er
bara að fara með mig....Kem með þrusu blogg innan skamms.
Samt ný skoðanakönnun og 110 hlutir um mig
Loves Pí Emm
»
Síður: 1 2 3 4
|
|